Sendu okkur tölvupóst
kristjan@studioek.isLáttu fylgja hvaða útgáfu af JÆJA og iOS þú notar, hvað þú varst að gera og hvað gerðist. Ekki senda lykilorð, innskráningarlykla eða viðkvæmt efni úr leik.
Algengar spurningar
Ég kemst ekki inn með Apple eða Google
Athugaðu nettenginguna, lokaðu innskráningarglugganum og reyndu aftur. Ef það virkar ekki, sendu okkur skjáskot af villunni og segðu hvort þú valdir Apple eða Google.
Leikjakóðinn virkar ekki
Biddu stjórnanda leiksins að lesa sex stafa kóðann aftur og gakktu úr skugga um að leikurinn sé enn í bið. Leikir renna sjálfkrafa út eftir 12 klukkustundir.
Hvernig breyti ég nafni, emoji eða mynd?
Ýttu á prófílmyndina á heimaskjánum. Þar geturðu breytt nafni, valið emoji eða hlaðið upp nýrri mynd úr myndasafninu.
Hvernig bið ég um afrit eða eyðingu gagna?
Til að eyða reikningnum skaltu ýta á prófílmyndina á heimaskjánum og velja Eyða aðgangi. Aðgerðin eyðir Clerk-reikningnum, prófílnum, myndinni og tengdum leikgögnum. Fyrir afrit, leiðréttingu eða ef þú kemst ekki inn í appið skaltu senda beiðni frá netfanginu sem tengist innskráningunni á kristjan@studioek.is. Við gætum þurft að staðfesta auðkenni þitt áður en beiðnin er afgreidd.
Ég vil tilkynna óviðeigandi efni
Í Slúðurhring senda spilarar inn sinn eigin texta, svo þú getur brugðist við beint í appinu. Þegar innslag birtist á skjánum ýtirðu á Tilkynna undir því. Stjórnandi leiksins sér þá að einhver hafi gert athugasemd, en ekki hver það var, og getur ýtt á Henda. Þá fer innslagið úr pottinum, kemur aldrei aftur upp og hringurinn heldur áfram á næsta innslagi.
Ef atvikið er alvarlegt, beinist gegn einhverjum eða þú vilt að við skoðum það skaltu senda okkur lýsingu á kristjan@studioek.is, án þess að dreifa efninu frekar.
Persónuvernd
Lestu persónuverndarstefnuna til að sjá hvaða gögn JÆJA vinnur með, hvaða þjónustuaðilar koma við sögu og hversu lengi upplýsingar eru geymdar.